Bullum Rugl
Byrjaði eins vel og hugsast gat. Allt var klárt og ekkert til fyrirstöðu því að allt myndi ganga upp. Á einhverjum tímapunkti þegar líða fór á morgunin var eg að sofna í sætinu mínu og þurfti að dreyfa athygglinni til að detta ekki á gólfið. MSN gott plan og fara inná gagnavefsjánna til að ath hvort allt væri ekki klárt. Ekkert virkaði.. fyrsta hugsun að tengingin væri ekki nægilega góð og þvi ekkert að kippa mér upp við þetta.. svo datt msn inn en ekki vefsjáin. hhhmmm hjartað fór að taka auka kipp! gæti það verið? Ekki þarf neitt sérstaklega mikið til að rústa jafnvæginu hjá mer... þannig eftir að eg var buin að tala við Helgu og hun að segja mér að við værum bara vongóðar með þetta... samt minkaði hjartslátturinn ekki... loks kom sms um að því miður yrði ekki að þessu þvi serverin hafi lagst á hliðina og ekki hægt að kippa þessu í lag. hhmmmm okei okei okei þetta reddast.. gerir það alltaf!!! fann hvernig hjartað hamaðist samt sem áður og eg þornaði í munninum! Fann gamlan fyrirlestut á tölvunni og svo var bara að skella sér í þetta og reyna að mixa eitthvað úr þessu. Fann þegar eg byrjaði að tala að röddin varð óskýr, hjartað hamaðist og búbbs... ekkert munnvatn! vatnssopi.. okei.. hélt áfram.. þornaði upp..alger þurkur... aaahhh heyrði sjálfan mig segja fróun í stað þróun fyrir framan svona 60 manns... ufff þar fór ég með það! andin yfirgaf líkaman og hann kláraði þetta og svaraði spurningunum... ég var löngu farin! bullum rugl..DRAMA DRAMA
En að sjálfsögðu höfðu allir skylning á þessu og eg er löngu buin að jafna mig. Fullt af fólki sem syndi verkefninu áhuga og jafnvel náði ég mér í 2 ný verkefni í dag þrátt fyrir allt crapið sem hentist á mig í dag. Kokteillinn á eftir var aldrei þessu vant fínn og svo flogið heim aftur. Frekar gott að hlusta á rokk á leiðinni heim og loka augunum.
